-------------------------------------------------
Skilaréttur
Viðskiptavinir hafa rétt á að skila vörum allt að 14 dögum eftir staðfestingu pöntunar, að uppfylltum eftirfarandi skilyrðum:
að varan sé í fullkomnu lagi, ósködduð og í söluhæfu ástandi.
að plastumbúðir og innsigli framleiðanda séu órofin.
að allar umbúðir og fylgimunir vörunnar ( snúrur, leiðbeiningar osfrv )
fylgi í skilunum, séu óskemmd og í söluhæfu ástandi.
Starfsfólk Reykjavík Foto metur söluhæfi skilavöu. Reykjavík Foto áskilur sér rétt til að hafna vöruskilum eða bjóða takmarkaða endurgreiðslu ef ofangreindum skilyrðum er áfátt. Endurgreiðsla eða inneignarnóta vegna vöruskila nær aðeins til sjálfs vöruverðsins. Annar kostnaður, svo sem vegna flutnings til eða frá söluaðila, er á ábyrgð kaupanda.
Greiðslur
Þegar greiða á fyrir vöru frá netverslun er hægt að millifæra inn á reikning
Reykjavík Foto ehf. Nr. 111-26-4620, kt. 460212-0220.
Einnig er hægt að greiða fyrir vöru með greiðslukortum frá VISA og Mastercard
Raðgreiðslur
Reykjavík Foto býður upp á kortalán frá 3 og allt upp í 36 mánuði. Vextir af slíkum lánum taka mið af gjaldskrá Valitor hverju sinni. Hægt er að reikna kortalán hér.
Þegar taka á lán fyrir kaupum skal haft samband við verslun í síma 577 5900.
Ábyrgðarskilmálar
Reykjavík Foto er viðurkenndur endursöluaðili allra vörumerkja sem verslunin hefur upp á að bjóða. Allar vörur hafa 2 ára umboðsábyrgð og öll þjónusta fer í gegnum viðurkennda þjónustuaðila viðkomandi merkja.
Allar vörur sem Reykjavík Foto selur hafa tveggja ára ábyrgð, nema annað sé tekið fram.
Afgreiðslutími
Söluvarningur fer í póst næsta virka dag eftir að greiðslustaðfesting hefur borist.
Íslandspóstur sér um allar sendingar á vörum og gilda þá reglur þeirra um ábyrgð, skilmála og afhendingartíma. Sendingarkostnaður er rukkaður samkvæmt gjaldskrá Íslandspósts, og greiðist af kaupanda nema annað sé tekið fram.
Reykjavík Foto - Laugavegi 51 - 101 Reykjavík - 577 5900 - info@reykjavikfoto.is - www.reykjavikfoto.is